Vinnuteikning af brauðbretti

 

Í þessu verkefni gerum við vinnuteikningu af honum.

 

Þegar þið eruð búin að horfa á skjámyndböndin skuluð þið svo teikna upp ykkar eigin form.

Gerðar eru vinnuteikningar af líkani til að þróa frekar form þess og útlit. Á sama tíma velktur hönnuðurinn eðli þess frekar fyrir sér og skoðar þætti í uppbyggingu þess svo sem stærðir einstakra hluta þess og staðsetningu hnita í rúmtaki þess. 

 

Veitið athygli þáttum sem undirbyggja góða vinnuteikningu:

§  Velja þarf vinnuteikningu með sjónarhornum sem auðvelda frekari þróun líkansins

§  Láta þarf líkanið fylla út í skjalið með notkun eins stórs mælikvarða og framast er kostur

§  Birta skal aðeins annan helming speglaðra flata til að spara pláss

§  Nota skal sneiðinga til að sýna innra eðli líkansins

§  Athuga þarf að allar stærðir séu réttar og lausar við bjögun

§  Alltaf skal hafa í huga spurninguna: “Munu aðrir skilja eðli hönnunarinnar?“

§  Ekki á að byggja ferlið á sjálfgefnum viðmiðunum forritsins.


Gaman er að leika sér að notkunarmöguleikum brauðbrettisins og leyfa forminu að þjóna notagildinu:

 

Málsett vinnuteikning