Vinnuteikning af blístru
Í þessu verkefni málsetjum við blístru og búum til vinnuteikningar af henni.
Veitið athygli þáttum sem undirbyggja góða vinnuteikningu:
§ Velja þarf vinnuteikningu með sjónarhornum sem auðvelda frekari þróun líkansins
§ Láta þarf líkanið fylla út í skjalið með notkun eins stórs mælikvarða og framast er kostur
§ Birta skal aðeins annan helming speglaðra flata til að spara pláss
§ Nota skal sneiðinga til að sýna innra eðli líkansins
§ Athuga þarf að allar stærðir séu réttar og lausar við bjögun
§ Alltaf skal hafa í huga spurninguna: “Munu aðrir skilja eðli hönnunarinnar?“
§ Ekki á að byggja ferlið á sjálfgefnum viðmiðunum forritsins.
: